Líf Magneudóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í borgarstjórn, segir það ekki sinn skilning að samþykkt hafi verið endanlega á félagsfundi VG í Reykjavík í dag að bjóða sameiginlega fram með Vori til vinstri til borgarstjórnar. Það liggi ekki heldur fyrir samþyki fyrir því að Sanna Magdalena Mörtudóttir leiði listann. Samkvæmt tillögu stjórnar VGR, sem var samþykkt á fundinum, fól fundurinn stjórn að ljúka við endanlega tillögu að framboði, þar á meðal röðun frambjóðenda. Steinunn Rögnvaldsdóttir varaformaður VGR segir hafa legið fyrir á fundinum að tillagan væri sú að Sanna Magdalena myndi leiða framboðið og VG velja frambjóðendur í annað og þriðja sæti. Líf segist skilja það sem samþykkt var á fundinum þannig að einungis hafi verið lýst yfir stuðning við áformin. Síðar yrði tekin afstaða til þess hvort boðið yrði sameiginlega fram. „Þegar málefnin liggi skýrt fyrir, það var mikið rætt um það á fuundinum að málefnagrundvöllur þessara tveggja framboða þurfi að liggja skýr fyrir,“ segir Líf. Því hafi ekki verið tímabært tilkynna um sameiginlegt framboð eða skiptingu sæta á lista. „Þú þarft skýrt umboð í flokki sem hefur menningu, sögu og ferla. Vor til vinstri er enn að bíða eftir kennitölu.“