Nýi vegurinn um Hornafjarðarfljót verður opnaður næsta vor. Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að vonir höfðu staðið til að opna veginn fyrr, en verklok voru áætluð í október 2025. Hins vegar náðist ekki að leggja seinna lag klæðingar á allan kaflann áður en veðuraðstæður lokuðu fyrir slíkar framkvæmdir.