Þjóðin valdi Hauk Þrastar sem mann leiksins

Áhorfendur völdu Hauka Þrastarson sem mann leiksins í fyrsta leik Íslands gegn Ítölum á Evrópumótinu í handbolta 2026. Valið fer fram í gegnum Rúv Stjörnur appið. Haukur skoraði 5 mörk úr 6 skotum í leiknum og gaf tvær stoðsendingar. Hann setti tóninn fyrir íslenska liðið þegar hann kom inn á eftir 20 mínútna leik. Orri Freyr Þorkelsson var annar og Elliði Snær Viðarsson þriðji í valinu. Næsti leikur Íslands er gegn Ungverjum á þriðjudaginn klukkan 19:30. Hvernig er kosið? Hægt er að sækja Rúv Stjörnur í App-store eða Play-store og kjósa mann leiksins í öllum leikjum Íslands á mótinu. Þeir sem kjósa og skrá sig í pott geta átt von á að vinna nýja landsliðsbúninginn.