Evrópusambandið boðar til aukafundar leiðtoga vegna deilunnar um Grænland

Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandins ætlar að boða til leiðtogafundar á næstu dögum til að ræða um viðbrögð við nýjasta útspili Bandaríkjastjórnar í deilunni um Grænland. Costa sendi frá sér tilkynningu um þetta í kjölfar þess að sendiherrar aðildarríkjanna í Brussel komu saman síðdegis í dag, á fundi sem er nýlokið. Í tilkynningu Costa er stuðningur Evrópusambandsins við Danmörku og Grænland ítrekaður; tekið er fram að deilur um tollamál skaði samskiptin við Bandaríkin og sé auk þess í andstöðu við þá viðskiptasamninga sem gerðir hafa verið. Costa tekur einnig fram að Evrópusambandið sé tilbúið að taka til varna gegn hvers konar hótunum.