„Afi var algjör prakkari og alltaf að segja manni skemmtilegar sögur. Maður heldur að maður muni eftir öllu en þegar hann féll frá held ég að það séu þrjár sögur sem standa virkilega upp úr,“ segir Bergþóra Heiða Guðmundsdóttir, lögmaður, fasteignasali og forfallin brauðtertuáhugamanneskja, sem ákvað að finna leið til úrbóta.