Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir hefur lýst yfir framboði til oddvita Viðreisnar á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Stillt verður upp á lista flokksins. Lovísa Októvía segir að Akureyri eigi að verða svæðisborg sem sé sterkt og mikilvægt efnahagslegt afl á Íslandi og sinni skuldbindingum sínum við íbúa og gesti vel. Til þess þurfi skýra forgangsröðun með öfluga grunnþjónustu, forvarnir, gagnsæi, snemmtæka íhlutun og lýðheilsu í forgrunni auk sterks atvinnulífs. Aðsend mynd