Bjarki Már: Ekki brotna heldur halda kúlinu

Bæði Ísland og Ungverjaland eru komin áfram í milliriðil. Það minnkar þó alls ekki mikilvægi leiksins annað kvöld. Sigurliðið byrjar með tvö stig í milliriðlinum og þar sem þar leika sex lið um tvö sæti í undanúrslitum getur slíkt verið ákaflega mikilvægt. „Þetta er soldið leikurinn um það hvernig þetta mót verður fyrir okkur,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson. „Við höfum mætt þeim alltof oft og oftar en ekki orðið undir í þeirri baráttu. Vonandi erum við búnir að læra af reynslunni. Við munum lenda í einhverju mótlæti, ekki brotna og bara halda kúlinu,“ segir Bjarki Már Elísson. „Við erum spenntir að spila. Ætli þetta sé ekki sú staða sem við sáum fyrir okkur,“ segir Janus Daði Smárason.