Hvalshræi sökkt á hafi úti

Búrhval rak á land rétt neðan við bæinn Strandsel innarlega í Ísafjarðardjúpi fyrr í mánuðinum. Varðskipið Þór dró hvalshræið á haf út í morgun. Aðalsteinn L. Valdimarsson, ábúandi á staðnum, fylgdist með aðgerðum Landhelgisgæslunnar en hræið var staðsett um 500 metrum norðan við bæ hans, Strandsel. Hann kveðst feginn að losna við hvalshræið áður en hlýna fer í veðri og það fari að rotna. Hins vegar segir hann það hafa verið ótrúlegt að fá að skoða svona ferlíki á túninu sínu heima. Hann segist geta tekið undir slagara Skítamórals, Farin: „Ertu þá farin, ertu þá farin frá mér?“