Lestarstjóri fórst og fimmtán farþegar slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús eftir að farþegalest var ekið á brak úr vegg sem hrunið hafði á lestarteina nærri Barcelona á Spáni í kvöld. Veggurinn hrundi af völdum illviðris sem gengur yfir Katalóníu-hérað og ferðum farþegalesta hefur verið frestað vegna þess. Lestarfélagið Rodalies de Catalunya staðfestir andlát starfsmannsins. Fjórir farþegar eru sagðir hafa hlotið alvarlega áverka í tilkynningu slökkviliðs Katalóníu. Það segir hátt í fjörutíu hafa hlotið aðhlynningu á vettvangi vegna minni háttar meiðsla. Slysið eykur enn á vangaveltur um öryggi í lestarferðum á Spáni en 42 fórust og yfir 120 slösuðust þegar tvær hraðlestir skullu saman í Andalúsíu á sunnudag.