Forystumönnum ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um það að þeir treysti þjóðinni til þess að ákveða í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hefja eigi á nýjan leik umsóknarferli að Evrópusambandinu. En hversu vel treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun í þeim efnum? Greinilega ekkert sérlega vel miðað við staðreyndir málsins.