Kosningar verða um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps 14.-28. mars

Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps hafa tekið ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 dagana 14.-28. mars nk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samstarfsnefndinni. Álit samstarfsnefndar um sameiningu Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna skilaði áliti sínu til sveitarstjórnanna, en samkvæmt sveitastjórnarlögum eiga sveitarstjórnirnar að fjalla um álitið án […]