Ungverjar standa í vegi fyrir láni Evrópusambandsins til Úkraínu

Ungversk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau muni ekki samþykkja áform Evrópusambandsins um að veita Úkraínu lán upp á 90 milljarða evra, eins og ákveðið var á leiðtogafundi ESB í desember. Utanríkisráðherra Ungverjalands, Péter Szijjártó, greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í gær; hann sakaði Úkraínumenn um að kúga Ungverja og sagði að stjórnvöld í Búdapest myndu standa í vegi fyrir afgreiðslu lánsins þangað til Úkraínumenn leyfðu flutning á olíu frá Rússlandi til Ungverjalands um Druzhba olíuleiðsluna, sem liggur um úkraínskt landssvæði. Á leiðtogafundinum í desember voru þrjú aðildarríki Evrópusambandsins, Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía mótfallinn því að veita Úkraínu þetta lán, en samþykktu það með því skilyrði að þau myndu ekki bera neinn kostnað af því. Áætlunin gerði ráð fyrir útgáfu skuldabréfa sem tryggð verða með veði í fjárlögum Evrópusambandsins, en sú aðgerð útheimtir samhljóða samþykki allra aðildarríkjanna. Kosningamál í Ungverjalandi Andstaða Ungverja kemur á sama tíma og stjórnvöld í Búdapest eru að búa sig undir harða kosningabaráttu í aðdraganda þingkosninganna í apríl. Fidez flokkur Viktors Orban hefur samkvæmt skoðanakönnunum farið halloka gagnvart Tisza flokknum, sem leiddur er af Peter Magyar, fyrrum samstarfsmanni Orbans. Kosningabarátta Orbans hefur að stórum hluta snúist um andstöðu hans við Úkraínu og gagnrýni á stuðning Evrópusambandsins við stjórnvöld í Kyiv. Ungverjar saka Úkraínumenn um að hafa skemmt Druzhba olíuleiðsluna, en úkraínski herinn segir að leiðslan hafi skemmst í árásum Rússa. Evrópusambandið bannaði innflutning á olíu frá Rússlandi eftir að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst fyrir næstum fjórum árum, en Ungverjaland og Slóvaíka hafa fengið undanþágu frá því banni. Lífsnauðsynlegt lán Ljóst hefur verið í talsverðan tíma að Úkraína þarf nauðsynlega á þessum fjármunum að halda, til að viðhalda varnarbaráttu sinni gegn innrásarliði Rússa. Lánið frá Evrópusambandinu er einnig forsenda þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veiti Úkraínu lán upp á átta milljarða evra. Evrópusambandið hefur stefnt að því að afgreiða þetta lán til Úkraínu fyrir næsta þriðjudag, þegar fjögur ár verða liðin frá því allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Sendiherrar aðildarríkjanna hafa ennfremur setið á stífum fundum til að ná samkomulagi um tuttugasta pakka refsiaðgerða ESB gagnvart Rússum; ekki er ljóst hvort Ungverjar standa í vegi fyrir þeim ráðagerðum.