Haraldur Sigurðsson – Halli – látinn

Haraldur Sigurðsson, betur þekktur sem Halli, er látinn, á 84. ári. Hann lést 18. febrúar eftir nokkur veikindi. Greint er frá andláti Haraldar í Morgunblaðinu í dag. Haraldur fæddist 5. júní 1942 og ólst upp hjá föðurafa sínum og ömmu í Miðey í Austur-Landeyjum. Haraldur byrjaði snemma að syngja, meðal annars í skólahljómsveitinni Capella á Héraðsskólanum á Skógum. Eftir að hafa sungið með fleiri hljómsveitum á Suðurlandi gekk Haraldur til liðs við Faxa þar sem Þórhallur bróðir hans, Laddi, spilaði á trommur. Andrés Indriðason fékk þá bræður til að ljá leikbrúðunum Glámi og Skrámi raddir sínar fyrir Stundina okkar í Ríkissjónvarpinu snemma árs 1971, en báðir störfuðu fyrir stofnunina á þeim tíma. Þeir vöktu mikla lukku og fljótlega hófu þeir Halli og Laddi vegferð sína sem skemmtikraftar, gáfu út plötur með gamansöngvum og skemmtu víða um land. Haraldur kom fram á mörgum plötum, einn og með Þórhalli. Margir muna vel eftir vinsælu plötunni Haraldi í Skrýplalandi sem kom út 1979. Þeir bræður stofnuðu HLH flokkinn ásamt Björgvini Halldórssyni og gáfu út nokkrar vinsælar plötur. Halli yfirgaf sviðsljósið að mestu seint á níunda áratugnum, en árið 1995 gáfu þeir bræður út plötuna Halli og Laddi í Strumpalandi. Halli vann lengi hjá bílaumboðinu Jöfri þar sem hann var sölustjóri og varð strax andlit fyrirtækisins í auglýsingum. Síðar vann hann við smíðar, enda mjög handlaginn, og loks í Húsasmiðjunni til 65 ára aldurs. Halli kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ragnhildi Ólafsdóttur, árið 1969. Þau eiga þrjár dætur og sjö barnabörn og þrjú barnabarnabörn.