Fór til Danmerkur til að drepa tvo menn því hann vantaði pening

Norskur maður var dæmdur í 13 ára fangelsi í Danmörku í gær fyrir tvær tilraunir til manndráps. Maðurinn var sakaður um að ferðast til Danmerkur til að reyna að drepa tvo menn gegn greiðslu á síðasta ári. Hinn 36 ára Dag-Ørjan Slåen játaði fyrir dómi. Hann sagðist ekki hafa vitað hver réði hann til ódæðisins en að honum hafi verið lofað jafnvirði rúmlega átta milljóna íslenskra króna fyrir. Ætluð skotmörk eru bæði með tengsl við dönsk glæpagengi, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá. Fyrri tilraunin misheppnaðist því skotvopn sem hann hafði fengið afhent virkaði ekki sem skyldi en í þeirri seinni hæfði hann 22 ára mann í bringuna. Sá þurfti að gangast undir aðgerð, hlaut mænuskaða og er lamaður fyrir neðan mitti. Slåen sagði í dómsal að hann vissi ekki hver hefði ráðið hann né hvers vegna honum var falið að drepa þessa tilteknu menn. Hann sagðist hafa látið til leiðast því hann vantaði pening. Hann átti samskipti við ónafngreinda einstaklinga með dulkóðuðum skilaboðum og hitti engan þeirra, nema eftir fyrra tilræðið til að fá nýtt vopn afhent. „Þeir sögðu að ég ætti að skjóta meira og að ég ætti að miða á höfuðið, til öryggis,“ sagði Slåen í réttarsal í dag. Tengsl við átök milli glæpahópa Mennirnir eru, samkvæmt heimildum DR, með tengsl við dönsk glæpagengi, Comanches og Loyal To Familia. Annar þeirra, sá sem slapp ómeiddur, var dæmdur fyrir líkamsárás í fyrra. DR segir einnig að nítján ára maður með tengsl við sænsk-danskan glæpahóp hafi verið í réttarsalnum við málsmeðferð Slåens. Sá hópur, Unknownteam, er talinn tengjast málum þar sem ungir drengir og menn voru ráðnir til að ráða menn af dögum. Ekki var gert mikið mögulegum tengslum við glæpahópa við réttarhöldin en samkvæmt heimildum DR hefur verið töluverð spenna og jafnvel komið til átaka milli þessara hópa.