Svo margir á skíðum að lög­reglan skarst í leikinn

Sólin skín á snæviþakinn Eyjafjörð og sjaldan ef nokkurn tímann verið jafnmikið að gera í Hlíðarfjalli. Alla og ömmur þeirra langar að komast í brekkuna og umferðin er slík að lögreglan þurfti að skerast í leikinn.