Sex gull af sex mögu­legum: Sögu­legur sigur Klæbo á Vetrarólympíu­leikunum

Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo vann sögu­legan sigur í fimmtíu kíló­metra skíðagöngu karla á Vetrarólympíu­leikunum í dag. Þetta voru sjöttu gull­verð­laun Klæbo í jafn­mörgum greinum á leikunum og slær hann þar með met yfir flest gull­verð­laun á einum og sömu Vetrarólympíu­leikunum.