„Það er löng saga samstarfs milli Morgunblaðsins og Landsmóts hestamanna og blaðið er einn af okkar helstu styrktaraðilum. Blaðið mun vinna með okkur í því að segja fréttir frá mótinu og það er stefnt að því að gefa úr sérblað í aðdraganda mótsins eins og gert hefur verið undanfarin mót,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna, eftir að hafa í gær undirritað styrktar- og samstarfssamning við Árvakur vegna Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði í sumar.