Forval hjá VG um helgina

Rafrænt forval VG hófst í gærmorgun. Fyrir hádegi laugardaginn 21. febrúar höfðu 28% kosið. Hreindís Ylva Garðarsdóttir sem situr í stjórn Vinstri grænna í Reykjavík segir að félögum í félagi VG í Reykjavík hafi fjölgað um á fjórða hundrað. Vinstri græn náðu inn einum borgarfulltrúa í síðustu borgarstjórnarkosningum, Líf Magneudóttur. Nú býður VG fram sameiginlegan lista í Reykjavík með Vori til vinstri sem oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík, Sanna Magdalena Mörtudóttir, stofnaði. Sanna Magdalena verður í fyrsta sæti á listanum. Fulltrúar VG verða í öðru, þriðja og sjötta sæti. Samkvæmt reglum VG má ekki halla á konur á lista. Átta eru í framboði um þrjú efstu sætin: Auður Alfífa Ketilsdóttir, Finnur Ricart Andrason, Hlynur Már Ragnheiðarson, Líf Magneudóttir, Riitta Anne Maarit Kaipainen, Stefán Pálsson, Steinar Harðarson, og Sveinn Rúnar Hauksson. Forvalinu lýkur klukkan fimm á morgun og þá strax fer kjörstjórn yfir niðurstöðurnar segir Hreindís Ylfa: „Og líka fær tækifæri til að kynna niðurstöðurnar fyrir frambjóðendunum áður en við opinberum. En það verður samt ekki langur tími. Ég myndi halda bara hálftími, 40 mínútur.“