Norski skíðagöngukappinn Johannes Hosflot Klæbo hélt áfram að skrifa íþróttasöguna þegar hann sigraði í 50 km skíðagöngu á næst síðasta keppnisdegi Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina í dag. Þetta eru sjöttu gullverðlaun Klæbo á leikunum sem er einsdæmi og hann skráir nafn sitt allrækilega í sögubækurnar, hann er ríkjandi heims- og Ólympíumeistari í öllum greinum skíðagöngu karla. Dagur Benediktsson var meðal keppenda í 50 km göngunni með rásnúmer 46. Hann var hringaður þegar rúmir 10 kílómetrar voru eftir og þá fá menn ekki að klára keppnina. Dagur var í 48. sæti þegar hann var hringaður. Norðmenn í þremur efstu sætum Það gerðist nú í fyrsta sinn frá Vetrarólympíuleikunum í Chamonix 1924 að Norðmenn unnu öll verðlaunin í 50 km göngunni. Martin Nyenget fékk silfur og Emil Iversen brons en þeir þrír fylgdust að lengst af göngunnar í dag. Nyenget var fremstur með Klæbo á hælunum þar til komið var í síðustu brekkuna en þar tók Klæbo fram úr og stakk af. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn síðan á leikunum í Garmisch-Partenkirchen árið 1936 að allir verðunahafarnir þrír koma frá sama landi, þegar Svíar unnu gull, silfur og brons. Átjánda gull Noregs Þetta voru átjándu gullverðlaun Noregs á leikunum í ár. Það er met sem Norðmenn slógu í gær þegar Johannes Dale-Skjevdal vann 15 kílómetra skíðaskotimi karla. Noregur sló þar eigið met frá því fyrir fjórum árum í Beijing og þetta eru þriðju leikarnir í röð þar sem Noregur bætir metið yfir fjölda gullverðlauna, og enn eru tveir dagar eftir.