Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps hafa ákveðið að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna. Hún verður haldin dagana 14. til 28. mars. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna að telur að sameinað sveitarfélag yrði fjárhagslega vel í stakk búið til að veita lögbundna þjónustu og sinna faglegri stjórnsýslu. „Það er því samdóma álit samstarfsnefndar að það sé vænlegur kostur fyrir íbúa Árneshrepps og Kaldrananeshrepps að taka höndum saman og sameina sveitarfélögin.“ Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru Árneshreppur og Kaldrananeshreppur annað og fimmta fámennasta sveitarfélag landsins. Sameinaður íbúafjöldi hreppanna yrði 175 og sameinað sveitarfélag yrði það fimmta fámennasta af rúmlega 60 sveitarfélögum á landinu.