Fjöldi stúdenta í Íran kom saman við marga háskóla í höfuðborginni Teheran í dag og gerðu hróp að stjórnvöldum. Þeir lýstu yfir samstöðu við þá sem stjórnarliðar drápu fyrir rúmum mánuði þegar mótmælaaldan þar í landi reis sem hæst. AFP-fréttastofan segir frá þessu og hefur eftir fjölmiðlum þar í landi og miðlum Írana utanlands. Átök brutust víða út milli mótmælenda og stuðningsmanna stjórnvalda. Stjórnvöld segja 3000 manns hafa farist í átökunum sem hófust í desember en mannréttindasamtök segja nær lagi að um 7000 hafi verið drepin, langflest af öryggissveitum stjórnarinnar. Mikil spenna umlykur því klerkastjórnina bæði innanlands og utan, því Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýstir mjög á um að samið verði um kjarnorkuáætlun landsins og hefur ekki útlokað að beita hervaldi til að ná fram skaplegri niðurstöðu.