Sjáðu Klæbo vinna öll gullverðlaunin sex

Árangur Klæbo á Vetrarólympíuleikunum er einsdæmi og hann er nú ríkjandi heims- og Ólympíumeistari í öllum greinum skíðagöngu karla. Enginn íþróttamaður hefur unnið fleiri gullverðlaun á einum og sömu Vetrarólympíuleikunum. Með gullinu í 50 km göngu í dag sló Kæbo 46 ára gamalt met skautahlauparans Eric Heiden sem vann fimm gullverðlaun á leikunum í Lake Placid 1980. Gullverðlaun Klæbo urðu þessi: Gullverðlaun 1 - 10 km skiptiganga - 8. febrúar Gullverðlaun 2 - Sprettganga - 10. febrúar Gullverðlaun 3 - 10 km skíðaganga - 13. febrúar Gullverðlaun 4 - 4 x 7,5km boðganga - 15. febrúar Gullverðlaun 5 - Liðasprettur - 18. febrúar Gullverðlaun 6 - 50 km ganga - 21. febrúar