Öryggisþjónustan FSB álítur Telegram ógn við öryggi ríkisins

Auglýsingaskilti í Moskvu sem hvetur fólk til að ganga til liðs við launaðar hersveitir.EPA / MAXIM SHIPENKOV Rússneska öryggisþjónustan FSB segir samskiptamiðilinn Telegram geta ógnað öryggi ríkisins. Milljónir Rússa nota miðilinn að staðaldri, þar á meðal hermenn á vígvöllum Úkraínu. Öryggisþjónustan segir notkun miðilsins iðulega hafa stefnt lífi hermanna í tvísýnu. Margir Rússar líta á Telegram sem mikilvægustu uppsprettu óháðra upplýsinga og óttast nú að notkun miðilsins verði bönnuð.