Donald Trump fullyrðir að spítalaskip sé á leið til Grænlands að sinna bágstöddum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir sjúkraskip á leið til Grænlands að sinna bágstöddum. Hann birti gervigreindarmynd því tengda á samfélagsmiðlinum Truth Social . Myndin, sem greinilega er unnin með hjálp gervigreindar, sýnir hvítt sjúkraskip merkt Rauða krossinum stefna undir bandarískum fána í átt að snævi þöktu landi. Myndinni fylgir eftirfarandi texti: „Við ætlum í samvinnu við Jeff Landry, hinn stórkostlega ríkisstjóra Louisiana, að senda stórt sjúkraskip til Grænlands til liðsinnis því marga fólki sem liggur sjúkt án nokkurrar aðhlynningar. Það er á leiðinni.“ Trump skipaði Landry sérstakan erindreka fyrir Grænland í desember. Danska ríkisútvarpið segir óljóst hvort sjúkrahússkip sé á leiðinni til Grænlands og ekki síður hvaða sjúklingum því sé ætlað að sinna. DR segir tvö skip geta komið til greina, USNS Mercy og USNS Comfort, en að þau liggi bæði við festar í hafnarborginni Mobile í Alabama, samkvæmt skipasjánni Marinetraffic. Landry hefur sjálfur deilt myndinni á samfélagsmiðlum og þakkað Trump fyrir framtakið. Hann kveðst jafnframt hafa verið í Washington um helgina og rætt þar við forsetann.