Tyrknesk kvikmynd um pólítískar ofsóknir hlaut Gullbjörninn

Nokkrir verðlaunahafar á kvikmyndahátíðinni í Berlín töluðu máli Palestínumanna í þakkarræðum sínum eftir að leikstjórinn Wim Wenders forseti dómnefndar sagði við upphaf hátíðarinnar að kvikmyndargerðarmenn ættu að halda sig fjarri stjórnmálum. Þýsk-tyrkneska kvikmyndin Gelbe Briefe hlaut Gullbjörninn sem besta mynd ársins á kvikmyndahátíðinni í Berlín í gærkvöld. Ilker Catak leikstýrir myndinni sem fjallar um tyrknesk leikarahjón sæta ofsóknum vegna stjórnmálaskoðana sinna. Þrátt fyrir að eiga að gerast í Tyrklandi var Gelbe Briefe tekin upp í Þýskalandi til að sýna að ofsóknir geti átt sér stað hvarvetna. Aðalhlutverkin eru í höndum þeirra Özgü Namal og Tansu Biçer. Wim Wenders sagði Gelbe Briefe ógnvekjandi fyrirboða, svipmynd inn í nána framtíð sem gæti hugsanlega gerst í öðrum löndum. Kvikmyndin Salvation eftir Tyrkjann Emin Alper hlaut Silfurbjörninn og hann lýsti yfir samstöðu með samlöndum sínum sem sitja í fangelsi vegna stjórnmálaskoðanna sinna, þeirra á meðal Ekrem Imamoglu, borgarstjóra Istanbúl. Alper lýsti einnig stuðningi við íranskan almenning, Kúrda og Palestínumenn á Gaza sem hann sagði lifa og deyja við hræðilegar aðstæður. Hér má sjá upptöku af þessari 76. kvikmyndahátíð í Berlín.