Enn frestast ferð umhverfis tunglið vegna bilunar

Útilokað er að senda mannaðan Artemis-leiðangur NASA í tíu daga ferð umhverfis tunglið 6. mars eins og til stóð. Jared Isaacson forstjóri stofnunarinnar greindi frá þessu í gær og sagði ástæðuna vandkvæði við að fylla skotflaugina af fljótandi helíum. Sú bilun, sem telst mjög alvarleg, greindist aðfaranótt laugardags. Á föstudagsmorgun leit út fyrir að öruggt væri að hefja ferðina innan fárra vikna enda virtist allur búnaður flaugarinnar í himnalagi eftir fimmtíu klukkustunda langar prófanir. Isaacson kvaðst því vel skilja vonbrigði fólks en áréttaði jafnframt að geimferðir væru tafsamt og erfitt verkefni. Hann rifjaði meðal annars upp að Gemini 8-leiðangrinum 1966 með Neil Armstrong innanborðs hefði lokið snemma vegna tæknivandkvæða. Þremur árum síðar, 20. júlí 1969, steig Armstrong á yfirborð tunglsins. Artemis 2 leiðangurinn verður fyrsta mannaða ferðin að tunglinu um hálfrar aldar skeið þegar að henni kemur. Fjórir geimfarar, Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt Kanadamanninum Jeremy Hansen, verða í áhöfn Artemis 2 sem fer umhverfis tunglið og lengra út í geim en nokkur mannvera hefur gert hingað til. NASA vonast til að Artemis 2 ryðji brautina fyrir Artemis 3-leiðangurinn sem ætlað er að lenda á tunglinu árið 2028 fyrsta sinni síðan 1972 en viðurkennir jafnframt að það séu býsna háleit markmið.