Á næstunni verður kannað hvað íbúar vilja að sameinað sveitarfélag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps skuli heita. Guðveig Lind Eyglóardóttir, formaður undirbúningsstjórnar að sameiningu og forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar.Aðsend mynd Skessuhorn hefur þetta eftir Guðveigu Lind Eyglóardóttur, formanni undirbúningsstjórnar að sameiningu og forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Sameiningin er talin verða fremur einföld vegna góðs samstarfs í um tvo áratugi Talsverður meirihluti greiddi í september atkvæði með sameiningu sveitarfélaganna tveggja í Skorradalshreppi, þrátt fyrir að hafa oft áður greitt atkvæði gegn sameiningu. Undirbúningsstjórnin leggur til að sameining sveitarfélaganna taki gildi 31. maí í vor, fimmtán dögum eftir sveitarstjórnarkosningar.