Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

Viðskiptaráð birti í vikunni úttekt á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þar er ljósi varpað á þá staðreynd að veikindaréttur hjá hinu opinbera er allt að sjöfaldur miðað við einkageirann. Samhliða þessum ríkari réttindum eru veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera.