Lokadagur ÓL: Sú sigurstranglegasta með hita

Vetrarólympíleikunum á Ítalíu lýkur í dag og verður þá barist um fimm síðustu gullverðlaunin. Mikil eftirvænting er fyrir 50 km skíðagöngu kvenna sem hefst klukkan níu í beinni útsendingu á RÚV. Óvænt tíðindi bárust í gærkvöld þegar hin sænska Frida Karlsson dró sig úr keppni vegna veikinda. Karlsson hefur þegar unnið tvenn gullverðlaun á þessum leikum og eitt silfur og þótti fyrirfram sigurstranglegust í 50 km göngunni í dag. Hún er hins vegar með hita og getur því ekki keppt og það setur keppnina í allt annað samhengi. Svíar tefla þó fram þremur sterkum keppendum, Ebba Andersson, Jonna Sundling og Emma Ribom. Ebba var mikið í sviðsljósinu um síðustu helgi þegar margumtalað fall hennar kostaði Svía gullið í skíðaboðgöngunni. Úrslitaleikurinn í íshokkí karla hefst klukkan 13 og þar mætast Kanada og Bandaríkin. Í krullu kvenna mætast Sviss og Svíþjóð í úrslitaleik klukkan 10. Þá ræðst einnig hverjir hreppa gullið í skíðafimi kvenna í hálfpípu og bobbsleða karla. Ólympíukvöld verður á dagskrá RÚV klukkan 15:50 í dag og þá verður keppni helgarinnar gerð upp. Lokahátíð Ólympíuleikanna hefst klukkan 19.