Svuntan á og kaffið í gang: Svona byrjar góður konudagur
„Konudagurinn er fram undan og þá er að mínu mati stórkostleg hugmynd að skella í góða köku. Mér finnast fáar tertur jafn fallegar og rómantískar og rauðar flauelstertur og góðar eru þær líka,“ segir Valgerður Gréta G. Gröndal eða Valla Gröndal.