Nína Björg Arnarsdóttir, sálfræðingur hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir fræðsluefni um kvíða, einmanaleika og samskiptavanda. Í myndböndum sínum á TikTok fjallar hún um allt frá ágengum hugsunum í fæðingarorlofi til samskiptavillna sem flestir kannast við. Hún segir mikilvægt að normalisera umræðuna um geðheilbrigði – en varar jafnframt við einföldunum og sjálfsgreiningum á netinu.