Björgum latínunni!

Menntaskólinn í Reykjavík er skóli sem byggist á gömlum hefðum. Hann getur rakið sögu sína aftur um 970 ár, til gamla Skálholtsskóla. Allan þann tíma hefur Latína verið stór þáttur í kennslunni. MR er um þessar mundir eini framhaldsskólinn á Íslandi sem er með fornmáladeild. Mörgum finnst að það sé eitt af stærstu einkennum skólans.