Gul viðvörun var á Suðurlandi í gær og skilyrðin urðu sérlega slæm undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. Ökumenn lentu í vandræðum og björgunarsveitir voru kallaðar til. Að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, var talsvert af lausum snjó undir Eyjafjöllum og skyggni verulega skert. Vegna þess hægðu ökumenn á sér eða jafnvel stoppuðu. „Og um leið og þeir stoppa þá fer snjó að draga í kringum bílana og það var það sem skapaði þessi vandræði fyrst og fremst.“ Voru margir bílar þarna á ferðinni? „Þetta hafði áhrif á þónokkuð margt fólk já, ég hugsa að þarna hafi verið eitthvað á annað þúsund aðilar,“ segir Jón. Fyrsta útkall barst um hálf fimm. Þá voru kallaðar út Flugbjörgunarsveitin á Hellu, Dagrenning á Hvolsvelli, Bróðurhöndin undir Eyjafjöllum og Víkverji á Vík í Mýrdal. „Fólk nálgaðist þetta úr öllum áttum og voru að greiða úr þessu til að verða langt gengið í níu í gærkvöldi. Svo má ekki gleyma bændum sem þarna komu að á dráttarvélum til þess að jafnvel kippa í moksturstæki sem höfðu lent í vandræðum við að reyna að krækja framhjá bílum sem voru fyrir þeim á þjóðveginum,“ segir Jón. Hann segir einhverjar skemmdir hafa orðið á bílum, meðal annars á Reynisfjalli þar sem smávægilegur árekstur varð. Slys hafi þó ekki orðið á fólki. Hvernig er staðan núna? „Mér sýnist staðan núna vera bara ágæt. Það er hált og krap í Mýrdalnum en Vegagerðin er við mokstur þannig að við vonumst til að þetta gangi bara sinn vanagang,“ segir Jón.