Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur hefur brugðist við yfirlýsingum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin væru að senda sjúkraskip til Grænlands til að hlúa að þeim sem þyrftu á heilbrigðisaðstoð að halda. Ekki þarf að lesa djúpt í þessa yfirlýsingu Trumps til að tengja við ásælni hans í Grænland og fullyrðingar um að grænlensku þjóðinni yrði betur borgið undir stjórn Bandaríkjanna. Frederiksen birti Instagramfærslu í morgun þar sem hún nefnir hvorki Trump á nafn, né bandarísk sjúkraskip, en segist þar ánægð með að búa í landi þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu sé án endurgjalds og öllum opinn. Landi þar sem tryggingar eða auður ráði því ekki hvort fólk fái þjónustu við hæfi. Það sama gildi um Grænland. Á vef DR, Danska ríkisútvarpsins, er haft eftir Troels Lund Poulsen varnrmálaráðherra að dönskum stjórnvöldum sé ekki kunnugt um að sjúkraskip sé á leið til Danmerkur.