Reykur sást á flug­vallar­svæðinu

Minniháttar sinueldur kviknaði við Reykjavíkurflugvöll á ellefta tímanum og sást reykur stíga upp frá flugvallarsvæðinu. Búið er að slökkva eldinn en minnst fjórir sinueldar hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu á innan við sólarhring.