Sjálfs­af­greiðslu­kassar og aukin sjálf­virkni auki vandann

Árum saman hefur verið mikill skortur á rafvirkjum á Íslandi og enn frekari skortur er yfirvofandi ef ekkert verður að gert. Þetta segir formaður Félags kennara í rafiðngreinum. Helst þyrfti að útskrifa tvöfalt fleiri á ári en nú er gert, þörfin fari vaxandi með aukinni tækniþróun og sjálfvirknivæðingu á meðan fjármagn skorti til að efla iðnmenntun og fjölga í greininni.