Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, sendi áskorun til heilbrigðisráðherra fyrir helgi um að falla frá komugjöldum í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ á Vogi. Framkvæmdastýra samtakanna sagði í hádegisfréttum í gær að fólk þyrfti að borga 17 þúsund fyrir komu og læknisviðtal sem væri ekki í samræmi við lágþröskulda þjónustu. Svala Jóhannesdóttir, formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, segir að þeirra skjólstæðingar upplifi það sama. „Það sem er kannski helsta áskorun okkar skjólstæðinga í Matthildarsamtökunum er þessi krafa um innlögn á Vog til þess að geta hafið meðferð ef staðfest ópíóíðafíknigreining er ekki til staðar. Það er ekki slík krafa í mörgum löndum í Evrópu,“ segir Svala. „Þetta gerir það að verkum að ákveðnir hópar upplifa ekki kannski greitt aðgengi að þessari meðferð eins og hún ætti að vera,“ bætir hún við. Nefnir Svala dæmi um fólk sem er í fullri vinnu, innflytjendur og mæður sem geti ekki farið frá heimilinu. Hún segir skjólstæðinga Reyks, skaðaminnkandi þjónustu sem var sett á laggirnar fyrir ári, hætti í meðferð vegna þröskulda eins og komugjaldsins á Vogi. Eiga ekki pening fyrir læknaviðtali „Við höfum séð nokkra af okkar skjólstæðingum falla út úr meðferð, hreinlega af því þau hafa ekki fjárhaginn til að greiða fyrir læknaviðtalið,“ segir Svala. „Þetta er gríðarlega sorglegt, að fólk þurfi að hætta svona mikilvægri og lífsbjargandi meðferð.“ 220 hafa leitað til Reyks síðan þjónustan var stofnuð, meirihlutinn, 60% glímir við þungan ópíóíðavanda. Svala kallar eftir því að þjónustan og þröskuldar við hana verði skoðuð heildrænt í heilbrigðisráðuneytinu með þeim samtökunum sem styðja við þetta fólk. „Það er gríðarlega mikilvægt að skoða hvaða þröskuldar eru í þessari meðferð út frá ólíkum hópum í íslensku samfélagi og reyna að vinna í þá átt að draga úr þeim þannig að flestir hafi góðan aðgang að ópíóíðalyfjameðferð.“ Svala segir að horfa þurfi til nágrannalandanna. „Okkar reynsla erlendis er að það er lögð gríðarleg áhersla á að lækka alla þröskulda að meðferðinni og ég held við þurfum að fara í þá vinnu heima,“ bætir hún við.