119 þúsund erlendir farþegar fóru frá Keflavíkurflugvelli í janúar, 2 prósent færri en í fyrra. Að frátöldum árunum 2020 til 2022 þegar kórónuveirufaraldurinn þarf að leita aftur til janúar 2016 til að finna lægri tölu. Þá voru þeir 78 þúsund. Árið 2018 var metár. Þá fóru tæplega 148 þúsund erlendra frá landinu. Mestu munar um fækkun Bandaríkjamanna. 24 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í janúar sem samsvarar ríflega fimmtungi allra brottfara. Í fyrra þegar þeir voru þeir 33 þúsund. Bretar vógu upp á móti. 21 þúsund Bretar fór úr landi og fjölgaði um tólf prósent frá í janúar í fyrra. Í þriðja sæti þjóða voru Kínverjar. Þeir voru níu þúsund og fækkaði um átta prósent frá sama mánuði í fyrra. Færri Íslendingar fóru utan í janúar en í fyrra og voru þeir 43 þúsund. Samtals fækkaði gestum um Keflavíkurflugvöll um fimm og hálft prósent í janúar samkvæmt tölum Isavia og voru þeir rúm 443 þúsund. Mest var að gera 4. janúar þegar 20.300 gestir fóru um flugvöllinn. Sextán flugfélög flugu beint frá Keflavík til 56 áfangastaða. Oftast var flogið til Lundúna, Kaupmannahafnar, Manchester, New York og Parísar.