Hamas velja leiðtoga – tveir koma til greina

Hamas-samtök palestínskra íslamista eru á lokametrunum með að útnefna nýjan leiðtoga. Þetta hefur fréttastofa AFP eftir framámanni í samtökunum, sem vill ekki láta nafns síns getið. Tveir eru sagðir um hituna. Samtökin mynduðu nýlega nýtt forysturáð. Meðlimir ráðsins, sem kallast Shura-ráðið, eru valdir til fjögurra ára í senn, úr öllum þremur einingum samtakanna, frá Gaza, Vesturbakkanum og félögum sem eru utan palestínskra svæða. Þeir velja svo pólitíska fulltrúa samtakanna, sem velja svo leiðtoga. Þeir sem sagðir eru koma til greina eru Khaled Meshaal and Khalil al-Hayya. Hayya er aðalsamningamaður Hamas og Meshaal var í pólitíska ráðinu um árabil fyrir hönd meðlima utan Palestínu. Hernaðararmur Hamas, Ezzedine Al-Qassem, styður Hayya, samkvæmt heimildum AFP. Fjöldi meðlima Hamas voru drepnir í aðgerðum Íraelshers eftir hryðjuverkaárás samtakanna á Ísrael 7. október 2023. Síðustu tveir leiðtogar Hamas, Ismail Haniyeh og Yahya Sinwar, sem var talinn höfuðpaur árásanna á Ísrael, voru drepnir með stuttu millibili árið 2024. Síðan þá hefur samtökunum verið stýrt af fimm manna nefnd sem starfar frá Katar. Um 1.200 manns voru drepnir í árás Hamas á Ísrael, en eftir þær hafa rúmlega 78 þúsund manns verið drepin í árásum Ísraels á Gaza.