Heyrnartól eru til margs brúkleg, við leik, störf, hvíld og líkamsrækt. Ný evrópsk rannsókn sýnir að skaðleg efni er að finna í hvers kyns heyrnartólum, óháð hver framleiðandinn er. Rannsókn samtakanna Tox Free leiðir í ljós að öll pör sem prófuð voru innihéldu efni sem eru skaðleg heilsunni, þar á meðal efni sem geta valdið krabbameini, hormónatruflunum og hægt á taugaþroska. Niðurstöðurnar sýna að dagleg notkun – sérstaklega við áreynslu þegar hiti og sviti eru til staðar – greiða leið skaðlegu efnanna í húðina. „Þessi efni eru ekki bara aukefni; þau gætu verið að flytjast frá heyrnartólunum inn í líkama okkar,“ segir Karolína Brabcová, efnafræðingur hjá ToxFree LIFE for All verkefninu. Langtímaáhrif skaðlegu efnanna eru áhyggjuefni Rannsakendur keyptu 81 par af heyrnartólum, annað hvort í verslun í Evrópu eða frá kínversku netverslununum Shein og Temu og létu greina þau á rannsóknarstofu. Hættuleg efni fundust í öllum heyrnartólunum. BPA, efni sem er notað eru til að stífa plast og líkja eftir virkni estrógens í lífverum og valda ýmsum aukaverkunum, fannst í 98 prósent sýnanna. Áhrifin eru ekki metin bráðhættuleg, en langtímaáhrif – sérstaklega fyrir viðkvæma hópa eins og unglinga – eru mikið áhyggjuefni að mati rannsakenda. Í umfjöllun The Guardian um rannsóknina var óskað eftir viðbrögðum frá Bose, Panasonic, Samsung og Sennheiser, sem öll framleiða heyrnartól. Ekkert fyrirtækjanna svaraði fyrirspurn fjölmiðilsins. Íslensk yfirvöld skoða aðgerðir til höfuðs skaðlegum efnum Rannsóknum á skaðlegum efnum í vörum fer fjölgandi. Norræn rannsókn sem gerð var í fyrra sýnir að um 70% þeirra vara sem keyptar eru í gegnum netverslanir á borð við Temu og Shein innihalda skaðleg efni sem bönnuð eru innan EES-landa. Fjöldi sendinga hefur þrefaldast frá 2022. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ræddi málið á norrænum ráðherrafundi á síðasta ári og greindi frá því í framhaldinu að Ísland mun leiða nýtt samnorrænt verkefni þar sem sérstök áhersla verður lögð á að taka á þeim áskorunum sem fylgja mikilli aukningu á viðskiptum við netverslanir.