Skutu mann sem braust inn í Mar-a-Lago

Vopnaður maður var skotinn til bana á Mar-a-Lago, aðsetri Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Palm Beach í Flórída, snemma í morgun. Maðurinn hafði farið í óleyfi inn á bústaðinn. Donald Trump var ekki á staðnum þegar þetta gerðist. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um það hvernig maðurinn komst inn á bústaðinn og hvað hann hugðist gera þar. Fyrr í þessum mánuði var maður dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðtilræði við Trump í september 2024. Maðurinn hafði falið sig, vopnaður riffli, á golfvelli Trumps í Flórída. Hann lagði á flótta þegar lögregla varð hans vör en náðist. Tveimur mánuðum áður skaut tvítugur maður að Trump á framboðsfundi. Trump særðist lítillega en maður sem var í hópi áheyrenda lést. Fréttin verður uppfærð.