Andersson náði fram hefndum: „Eins og hún sé í annarri íþrótt“

Ebba Andersson var langfyrst í mark í 50 km skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Keppni dagsins var hálfgert svar hennar við ævintýralegu klúðri í boðgöngu kvenna fyrr á leikunum. Þá datt hún í tvígang og Svíar misstu af gulli sem spekingar bjuggust við að yrði þetta. Ebba var í hefndarhug í dag og var tveimur mínútum og fimmtán sekúndum á undan Heidi Wang sem tók silfur. Það er heil eilífð í skíðagöngu. Spekingar í Noregi segja Andersson nánast vera í annarri íþróttagrein miðað við andstæðinga hennar. „Hún var í annarri íþróttagrein en hinar í dag, ásamt Heidi Weng. Aðrar eru í lægri flokki,“ sagði íþróttafréttamaðurinn Jann Post hjá NRK. „Mér líður eins og þetta hafi verið hefnd. Hún er í raun tvöföld eftir 50 kílómetra gönguna í Þrándheimi á síðasta ári. Ég hef klárlega ekki átt auðvelda viku,“ sagði Andersson í viðtali við VG. „Þetta er allt smá ótrúlegt. Þetta hefur verið frekar löng vika frá síðustu keppni svo að ég hef þurft að berjast við hugsanir mínar,“ bætti hún við. Svíar misstu gull í hendur Norðmanna eftir nær ótrúlegt fall hennar fyrir átta dögum. Í þetta sinn gerði Andersson engin mistök og fór afar illa með mótherja sína. Gull - Andersson - Svíþjóð - 2:16:28 klukkutímar. Silfur – Wang – Noregur – 2:18:44 klukkutímar. Brons – Kaelin – Sviss – 2:23:10