KA fór upp fyrir ÍBV með sigri

Logi Gautason.Rúv / Mummi Lú KA vann 29-28 sigur gegn ÍBV í efstu deild karla í handbolta. Einar Rafn Eiðsson fór fyrir KA mönnum með níu mörk úr ellefu skotum en auk þess var hann með sjö stoðsendingar. Ágúst Elís Björgvinsson varði 15 skot fyrir KA og var með 34,9% vörslu. Hákon Daði Styrmisson og Andri Erlingsson voru með sjö mörk hvor fyrir ÍBV. ÍA leiddi 20-24 þegar 13 mínútur voru eftir en KA var sterkari á lokakaflanum. KA fer upp í 5. sæti með 24 stig en ÍBV er í 5. sæti með 23.