Líf Magneudóttir bar sigur úr býtum í baráttunni um oddvitasæti Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri grænum í Reykjavík um niðurstöðu forvals félagsins. Metþátttaka var í forvalinu en alls greiddu 1.093 atkvæði, eða 42 prósent þeirra sem voru á kjörskrá. Kosið var um efstu þrjú sæti á sameiginlegum lista Vinstri grænna og...