Tómatsósufordómar á Íslandi

Þögn er pönkhljómsveit frá Vestmannaeyjum sem var upprunalega stofnuð til þess að virkja stelpur í senunni. Hljómsveitin gaf út sína fyrstu stuttskífu, Læti, föstudaginn þrettánda og geymir hún fjögur grínskotin og pönkuð lög ásamt tveimur auka lögum, eða bonus tracks. Sveitina skipa þær María Fönn Frostadóttir, Aðalbjörg Andrea Brynjarsdóttir, Arna Gunnlaugsdóttir, Júlí Arna Sigurjónsdóttir og Linda Vernharðsdóttir. Það var María sem fékk hinar til þess að vera með sér í hljómsveit. Henni fannst vanta fleiri stelpur í rokksenuna, sérstaklega í Vestmannaeyjum. Hún hafði því samband við stelpur sem hana grunaði að myndu hafa áhuga á því að gera eitthvað slíkt og úr því varð hljómsveitin Þögn. Stelpurnar kynntust þó upprunalega í Leikfélagi Vestmannaeyja og í skátunum. Þeim líður vel með útgáfuna og eru stoltar af því að hafa loksins komið þessu út. Þær segja að platan hafi í raun verið tilbúin í nokkurn tíma en svo tók öll hin vinnan tíma, eins og að gera plötuumslag o.fl. Þær völdu ekki þennan óhappaútgáfudag af ásettu ráði en höfðu leitað lengi að fullkominni dagsetningu. Þrettándi febrúar varð því fyrir valinu sem svo skemmtilega vildi til að það var einnig föstudagur. Upptökuferlið tók sinn tíma en trommutökurnar á stuttskífunni voru teknar upp einu og hálfu ári fyrir útgáfuna. Arnar Júlíusson tók upp og pródúseraði plötuna fyrir þær en samkvæmt þeim gefur hann öllum hljómsveitum frá Vestmannaeyjum eina fría plötu. Arnar er upprunalega gítarkennarinn þeirra og hefur fylgt þeim í gegnum allt ferlið. Það eru alveg tómatsósufordómar í heiminum. Lagið Tómatsósufordómar á stuttskífunni kom til þegar hljómsveitin komst áfram í Músíktilraunum en var aðeins búin að semja tvö lög. Þær vantaði því þriðja lagið fyrir úrslitakvöldið og hófust handa við að semja en ekkert gekk. Eftir tvo daga af því komu þær saman þriðja daginn og ákváðu að gera riff sem þær þróuðu svo áfram með köflunum sem þær höfðu samið hina dagana. Titillinn varð svo til þegar hljómsveitin sat í hring og skiptist á að segja handahófskennd orð. Þá komu orðin tómatsósa og fordómar í röð sem þeim fannst vera mjög sniðugt. Hljómsveitin vill að það sé undir hlustendum komið að túlka hvað tómatsósufordómar séu nákvæmlega. Þær halda því samt fram að þeir séu til staðar, sérstaklega á Íslandi þar sem fólk hér á landi vill oftast frekar kokteilsósu. Stuttskífan var öll tekin upp í Eyjum en nú búa aðeins tveir meðlimir sveitarinnar þar. Þrátt fyrir það gengur hljómsveitin upp. Í vetrarfríum eru þær oftast allar í Eyjum og stundum um helgar. Þær eru með æfingaaðstöðu þar en æfa stundum einnig í annarri aðstöðu í bænum eða í Hinu húsinu. Þær kippa sér heldur ekki mikið upp við það að sigla með hljóðfærin og allt sitt hafurtask til þess að spila á tónleikum í bænum. „Það er alltaf eitthvað vesen en það reddast alltaf að lokum.“ Þögn hélt útgáfutónleika á Dillon daginn sem platan kom út ásamt hljómsveitunum Scatterbrayn og Dirt Talent Extrakt. Einhver misskilningur varð þó í kringum tónleikana og fólki undir lögaldri var ekki hleypt inn. Hljómsveitin stefnir þó á að halda aðra tónleika sem verða þá fyrir fólk á öllum aldri til þess að bæta upp fyrir það. „Við munum gera aðra tónleika og ykkur er öllum boðið,“ segir María. Það skiptir þær miklu máli að tónlist sé aðgengileg öllum, sérstaklega þar sem þær muna sjálfar eftir því að vera þrettán ára og geta ekki séð uppáhaldshljómsveitina sína spila vegna aldurstakmarka. Þeim finnst vanta fleiri staði þar sem fólk á öllum aldri getur komið og hlustað á tónlist í lifandi flutningi. Í fyrra bar hljómsveitin sigur úr býtum í hljómsveitakeppninni Allra veðra von sem var upprunalega haldin í Eyjum á árunum 2002 til 2008 en var endurvakin 2024. Fyrir sigurinn fékk hljómsveitin tíma í stúdíói og ætlar að nýta sér hann í sumar til þess að taka upp. Þær eru því strax farnar að vinna í næstu plötu. Fjallað var um Þögn í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Pönkhljómsveitin Þögn gaf út sína fyrstu stuttskífu, Læti, föstudaginn 13. febrúar. Ólátagarður á Rás 2 spjallaði við sveitina.