Hestar fluttir vegna sinueldsins

Nokkrir hestaeigendur í hestamannafélaginu Spretti vinna nú að því að flytja hesta sína í skjól en eldur logar í sinu á stóru svæði uppi á hæðinni í Vatnsendahlíð í Kópavogi sunnan við Þingahverfi, nærri útivistarsvæðinu Guðmundarlundi.