Ágúst Ingi í 6. sæti á tvíslá í Heimsbikarmóti

Fimleikakappinn Ágúst Ingi Davíðsson úr Gerplu varð í 6. sæti á heimsbikarmóti á tvíslá. Mótið fór fram í Cottbus í Þýskalandi í dag. Alls taka keppendur frá um 40 þjóðum þátt á mótinu. Ágúst keppti á gólfi, hringjum og tvíslá og Dagur Kári Ólafsson keppti á bogahesti, tvíslá og svifrá. Ágúst bætti æfingu sína frá því í undanúrslitum og fékk 13,366 stig sem skilaði honum í 6. sæti. Efstur var hinn japanski Shohei Kawakami með 14,866 stig. Ágúst var í 8. sæti og fór því upp um tvö sæti í úrslitum. Ágúst var einnig varamaður inn í úrslit í hringjum þar sem hann varð í 9. sæti. Hann endaði einnig í 14. sæti á gólfi. Mikilvæg stig fyrir HM Stigin sem Ágúst og Dagur fengu síðustu daga eru mikilvæg í baráttu þeirra um að komast inn á heimsmeistaramótið sjálft sem fer fram í Hollandi í haust. Dagur Kári keppti í undanúrslitum á svifrá og varð í 25. sæti. Hann varð í 13. sæti á bogahesti og 19. sæti á tvíslá.