Reykjanesbær vill kaupa hluta af lóð kísilverksmiðjunnar í Helguvík

Kauptilboð Reykjanesbæjar í hluta af lóð kísilversins í Helguvík hefur verið samþykkt af bæjarráði sveitarfélagsins. Á síðasta ári keypti byggingar- og þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. mannvirkið og lóðina og buðu sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir metnaðarfull áform um uppbyggingu á staðnum. „Sorgarsögu kísilversins í Helguvík þekkjum við hérna í Reykjanesbæ mjög vel en þegar verksmiðjan varð gjaldþrota á sínum tíma þá fór mannvirkið og lóðin sem hún stendur á í hendur dótturfélags Arion banka og hefur verið þar þangað til á síðasta ári. Þá keyptu einkaaðilar mannvirkið og lóðina og hyggjast þeir rífa mannvirkið og buðu sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups.“ Halldóra segir einhug hjá bæjarráði um kaup á lóðinni. Í kaupunum felist gríðarleg tækifæri. „Meðal annars í því að eignast þarna dýrmætt og eftirsótt byggingarland sem stendur við höfnina okkar í Helguvík þar sem hefur líka verið mikil uppbygging síðastliðin ár og mun sú uppbygging halda áfram auk þess að lóðin stendur þarna í túnfæti alþjóðaflugvallar.“ Og er eitthvað búið að ákveða hvað á að gera á staðnum? „Framtíðaráhorf fyrir svæðið hafa verið í vinnslu en þau leggja áherslu á að svæðið byggist upp með eins vistvænum áherslum og hægt er þar sem nálægðin bæði við höfnina og flugvöllinn verða nýtt til fulls,“ segir Halldóra. Hluti af lóðinni verður áfram í eigu Reykjanes investments og Halldóra segir sveitarfélagið í góðu samstarfi við eigendur þess sem séu heimafólk. „Ég vænti þess að við munum bara halda því samstarfi áfram og við höfum auðvitað alltaf skipulagsvald og það er auðvitað starfsemi á lóðinni nú þegar en ég held að við séum bara samstíga í því að svæðið í heild sinni nýtist sem best fyrir samfélagið,“ segir Halldóra.