Lokað verður yfir Reynisfjall á meðan unnið er að því að losa flutningabíl sem er fastur þar. Að sögn Orra Örvarssonar, formanns björgunarsveitar Víkverja, er töluverð úrkoma og vindur er á svæðinu. Hann segir færðina slæma. Veginum hafi verið lokað tímabundið af og til í dag á meðan bílar eru losaðir. Skafrenningur og blautur snjór er á veginum.