Arsenal vann grannaslaginn og heldur fimm stiga forystu

Eze fagnar einu af mörkum sínum í kvöld.AP / Frank Augstein Arsenal vann Tottenham Hotspur 1-3 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið er sem fyrr í efsta sæti og með fimm stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Eberechi Eze kom Arsenal yfir eftir 32 mínútur en Randal Kolo Muani jafnaði metin fyrir Spurs eftir klaufagang hjá Declan Rice skömmu síðar. Viktor Gyökeres kom Arsenal aftur yfir með firnaföstu skoti utan teigs á 47. mínútu. Það var svo Eze sem hálfpartinn gerði út um leikinn á 61. mínútu. Gyökeres skoraði fjórða markið í uppbótartíma. Þetta var fyrsti leikur Igor Tudor, nýs stjóra Tottenham. Liðið er sem fyrr í 16. sæti, fjórum stigum frá fallsæti.